Fara í aðalefni
Hansson

Hvað þarftu?

Seldu hjá okkur

Seldu hjá okkur

Heimili þitt á Spáni – með aðstoðina sem þú þarft

Hjá Hansson hjálpum við þér að finna draumaheimilið á Costa Blanca og Costa Cálida. Við störfum á svæðinu frá Águilas til Benidorm, með sérstaka áherslu á Orihuela Costa, Torrevieja, Ciudad Quesada, Benijófar, Guardamar, Pilar de la Horadada og San Miguel de Salinas.

Birgir Hans Birgisson hefur 8 ára reynslu af spænska fasteignamarkaðnum og þekkir vel svæðin, nýbyggingarnar og þær fjölmörgu spurningar sem geta vaknað þegar fasteign er keypt í öðru landi.

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, faglega ráðgjöf og einstaklingsmiðaða aðstoð í gegnum allt kaupferlið. Markmið okkar er að gera fasteignakaup á Spáni eins einföld, örugg og þægileg og kostur er.

Forsíða

Sérfræðingar í nýbyggingum og að finna nýtt heimili undir sólinni

Nýbyggingar eru okkar sérsvið. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval íbúða, raðhúsa og nútímalegra einbýlishúsa sem eru hönnuð til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið. Við aðstoðum einnig við kaup og sölu á notuðum eignum og bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu fyrir þá sem vilja kaupa fasteign eða hefja nýtt líf á Spáni.

Við fylgjum þér í gegnum allt ferlið og stöndum áfram við hlið þér eftir að þú færð lyklana afhenta. Við getum meðal annars aðstoðað þig við að sækja um NIE-númer og dvalarleyfi, skráningu í spænska heilbrigðiskerfið, gerð erfðaskrár, lyklaafhendingu og lykilavörslu, fasteignaumsjón, leiguþjónustu og þýðingar.

Hjá Hansson finnurðu meira en bara fasteign. Þú finnur traustan samstarfsaðila sem er til staðar fyrir þig og hjálpar þér að gera lífið á Spáni einfaldara, öruggara og þægilegra.

Kynntu þér þjónustu okkar